Var byrjuð að blogga um daginn, enn þá sloknaði á tölvunni. Best að byrja aftur!
Það er komin 23. september. Það er skuggalegt ef maður hugsar út í það að það eru alveg að koma jól, það er farið að vera mjög dimmt úti á kvöldin og farið að snjóa í fjöllin. Ótrúlegt!
Ég er búin að eiga afmæli, alltaf gaman að eiga afmæli! Fékk meirað segja nokkra pakka. Ég fékk gjafabréf í töff föt frá Brynju, Trausta, Helgu, Christian og Bilbó. Lampa frá ömmu & afa Halldórs. Svo fékk ég BodyButter frá Söru frænku Halldórs og fjölskyldu. Svo fékk ég auðvitað pakka frá honum Halldóri mínum:* Ég fékk geðveikt fallegt hálsmen og gjafabréf í töff. Takk fyrir gjafirnar fólk<3
Þessi afmælisdagur var kannski sérstakur vegna þess að þegar maður verður 17 ára fær maður gjarnan bílpróf. Náðum í ökuskírteinið mitt í hádeginu og skruppum svo smá rúnt eftir skóla. Ekkert smá gaman sko! Samt mjög skrítið að allt í einu sitji maður bara einn í bíl og enginn til að segja manni til og maður á bara að keyra. Enn ég hef nú ekki lent í neinum óhöppum hingað til. Vona að ég lendi ekkert í því strax..vonandi bara aldrei!
Helgin var fín. Var að vinna á Föstudag og eftir vinnu fór ég heim til Halldórs og þá var hann búinn að elda handa mér með diggri hjálp móður sinnar, HeHe. Ég bjó svo til eftir matinn* Þetta var ekkert smá gott allt saman. Eftir matinn fórum við smá á rúntinn enn ekkert lengi og fórum heim að sofa.
Svo var það vinna allan laugardaginn
það var ekkert að gera , og mér leiddist ógisslega mikið allan vinnudaginn. Þetta var svona eins og 3 daga að líða
Svo eftir vinnu gerði ég e-ð fátt..Eða svo seinna um kvöldið fór ég til ÖnnuM þar voru jú e-r stelpur og við skruppum á rúntinn og rúntuðum langt fram eftir nóttu. Það var bara ágætt skal ég segja ykkur*
Áhugaverð helgi semsagt! -
Ég er að deyja þessa dagana mér langar svo mikið í bíl. Það yrði ekkert þægilegra enn að eiga bíl og
-geta keyrt í skólann í stað þess að eyðileggja á sér bakið á því að bera töskuna
-geta farið til Egilsstaða mikið oftar enn ég geri. langar svo að fara að fara..enn það er svo erfitt að finna tima og mikið vesen að finna far og e-ð, þannig bíll yrði lausnin..verst að maður enga peninga í þetta mál ef að maður á að gera lifað *
-og svo eru svo margar aðrar ástæður!
Ef að fólki leiðist, held ég að það ætti að labba út á næstu myndbandaleigu. eða nei.. ekki ef að fólkið býr á Húsavík enn annars að leigja sér myndina Flightplan með Jodie foster of fleirum! ææægilega góð mynd! Sú besta sem ég veit um í augnablikinu! mæli með henni ef þér leiðist!
Húff.. á að vera núna að læra undir próf! enn er auðvitað ekki að gera það! Held að mér finnist ekkert leiðinlegra enn Brennu-Njálssaga!
Próf úr henni einmitt á morgun. Ekki séns að ég geti bara munað svona mörg nöfn..og þar að auki eru þessi nöfn öll alveg eins. Þetta er voðalegt! Þótt að það sé furðulegt þá finnst mér skemmtilegasta fagið í skólanum hjá mér báðir náttúrufræðiáfangarnir sem ég er í! Sem er stórfurðulegt því að mér hefur alltaf fundist náttúrufræði leiðinleg enn núna þá heillast ég alveg að henni.. eða kannski er ég bara í leiðinlegum áföngum! gæti hugsast..
Plönin fyrir þessa vikuna eru:
- Fara að kaupa föt fyrir gjafakortin
- Panta tíma í Litun&Plokkun er eins og ég veit ekki hvað, allavegana e-ð loðið dýr
- hmm.. er ekki búin að plana neitt meira
Enn núna.. þá er ég komin með langt og leiðinlegt blogg sem ég á skilið komment fyrir
---Hittumst heil---
GuðrúnSigurðardóttir